Söngvarinn Eyjólfur Kristjánsson mun halda tvenna tónleika á Siglufirði föstudaginn 25. júlí. Annars vegar mun hann spila á veitingastaðnum Hannes Boy fyrir gesti þar og svo síðar um kvöldið á Kaffi Rauðku. Tónleikarnir á Kaffi Rauðku hefjast kl. 22 og opnar salurinn kl. 21:30. Óhætt er að mæla með Hannes Boy, en þar er frábær matseðill og mjög góð þjónusta og algjört hágæða veitingahús.

Kaffi Rauðka