Í gær greindist erlendur ferðamaður með staðfest smit af COVID-19. Hann átti leið um Norðurland með fjölskyldu sinni og er í einangrun á Akureyri og fjölskylda hans í sóttkví. Á þessari stundu eru ekki frekari upplýsingar um ferðir mannsins. Frá þessu greinir Lögreglan á Norðurlandi eystra.

Lögregla ítrekar fyrir fólki að halda uppi virkum smitvörnum, þvo og spritta hendur, halda 2 metra fjarlægð og forðast mannmergð.