Nú eru liðnir 36 klukkutímar frá því að dæling hófst á vatni úr Njarðarskemmu Síldarminjasafnsins á Siglufirði. Um miðja nótt var staðan orðin þannig að dælurnar höfðu ekki undan og vatnsdýptin innandyra í Njarðarskemmu var orðin 90 cm.
Slökkviliðið Fjallabyggðar mætti þá á staðinn með stærri dælur og hóf jafnframt að dæla vatni af lóð Síldarminjasafnsins og út í sjó.
Nú undir kvöld hefur vatnsmagnið minnkað töluvert, en enn er þörf á stöðugri dælingu til að halda ástandinu í skefjum.
Þetta kemur fram í pistli frá Anitu Elefsen, safnstjóra Síldarminjasafnsins.
Þrátt fyrir þetta ástand þá hefur tekist að halda Síldarminjasafninu opnu, en safnhúsið Grána hefur verið lokuð.
