Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu um að grunur væri um eld í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var um 500 metra norður af Siglufjarðarhöfn laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þrír voru um borð í bátnum.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og áhöfn björgunarskipsins Sigurvins, frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, voru þegar í stað kölluð út á mesta forgangi.
Björgunarskipið fór frá Siglufirði örfáum mínútum síðar, tók fiskibátinn á síðuna og færði að bryggju á Siglufirði þar sem slökkviliðsmenn fóru um borð.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þá afturkölluð. Engan sakaði um borð í bátnum.
