Fjallabyggð fékk eitt tilboð í endurbætur á tæknirými í Sundhöll Siglufjarðar, það er sundlaugarlögnum, raflögnum og fleiru. Tilboð í verkið kom frá Finni Inga Sölvasyni að upphæð 81.695.344 kr.
Kostnaðaráætlun verksins var 79.061.813 kr. Tilboðið er því um 3% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að taka tilboði Finns í verkið.