Einn sótti um stöðu hafnarvarðar í Fjallabyggð en auglýst var í starfið fyrir skemmstu. Hafnarstjóri Fjallabyggðar hefur lagt til að Kjartan Smári Ólafsson verði ráðinn í starfið.
Kjartan hefur víðtæka reynslu af starfinu þar sem hann hefur leyst hafnarverði á Siglufirði af síðastliðin 13 ár.