Næsti verkáfangi er hafinn hjá Hollvinafélagi Kvíabekkjarkirkju í Ólafsfirði. Í vikunni hófst undirbúningur en til stendur að einangra þak kirkjunnar og skipta út bárujárni. Það eru fagmenn sem sjá um þennan hluta verksins og hefur Trésmíði ehf tekið að sér verkefnið.
Fjarlægja þurfti kirkjuturninn af þakinu og koma klukkunum inn í kirkjuna.
