Knattspyrnufélag Akureyrar hefur tilkynnt að Agnar Óli Grétarsson hafi samið við félagið til ársins 2027. Agnar Óli kemur frá Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar og er fæddur árið 2008.  KA greinir frá því að Agnar Óli verði lánaður til KF og spili með meistaraflokki í sumar í 3. deildinni en jafnframt með 2. flokki KA/Dalvík/KF.

Agnar Óli á 34 leiki með meistaraflokki KF og hefur skorað 6 mörk. Hann spilar sem sóknarmaður, en hann er líka þekktur fyrir að taka löng innköst og hefur oft skapað mikla hættu í sóknum KF.

Frábært skref fyrir þennan unga og efnilega leikmann.