Starfshópur mennta- og barnamálaráðherra hefur skilað tillögum sínum að eflingu almenningsíþróttastarfs.

Íþróttaiðkun gegnir mikilvægu hlutverki í viðhaldi andlegrar og líkamlegrar heilsu, ekki síst þegar við eldumst. Hún leiðir til heilsusamlegs lífernis og fyrirbyggir sjúkdóma. Þannig eykur hún farsæld og framleiðni í samfélaginu.

Starfshópurinn var skipaður í mars 2023 til að leggja mat á markmið og árangur gildandi stefna og áætlana á sviði íþrótta og til hvaða ráðstafana íþróttafélög geta gripið til að halda fólki í íþróttum og virkja eldri aldurshópa. Honum var falið að skilgreina hvaða þætti þurfi að efla í almenningsíþróttastarfi og hvernig það verði best gert. Þá var hann fenginn til að skoða íþróttalög og mögulegar breytingar á þeim með áherslu á almenningsíþróttir og heilsueflingu í anda lýðheilsumarkmiða stjórnvalda.

Tillögur starfshópsins eru eftirfarandi:

  • Draga fram mikilvægi skólaíþrótta og hreyfingar á hverjum degi í skólastarfi.
  • „Vertu með leiðinni“, hreyfingarátak fyrir 13 ára og eldri innan íþróttahreyfingarinnar með það að markmiði að ná til fleiri iðkenda og halda þeim lengur virkum í íþróttastarfi.
  • Efling íþróttaframboðs fyrir eldri borgara í samstarfi við sveitarfélög.
  • Lagt er til að ábyrgð á málaflokki almenningsíþrótta/lýðheilsu verði betur skilgreind og meiri áhersla verði lögð á raunverulegar aðgerðir og eftirfylgni með þeim. Hópurinn telur að greina þurfi betur stöðuna varðandi almenningsíþróttir hér á landi svo hægt sé að ráðast í markvissari aðgerðir sem skila árangri.
  • Vel menntaðir kennarar/þjálfarar eru lykilaðilar í eflingu faglegs íþrótta- og lýðheilsustarfs. Þessa lykilaðila þarf að meta að verðleikum og þeim þurfa að bjóðast laun samkeppnishæf við aðra kennslu, möguleika á endurmenntun og góðar aðstæður til kennslu.
  • Koma þarf á faglegum stuðningi við þjálfara og leiðtoga á vettvangi. Þar geta svæðisstöðvar íþróttahéraða haft hlutverki að gegna.
  • Tryggja jafnræði til þátttöku í öllum íþróttum og hreyfingu, óháð efnahag eða öðrum bakgrunni.