Þriðjudaginn 31. október næstkomandi, mun fyrsta flugvélin frá breska flugfélaginu EasyJet lenda á Akureyrarflugvelli, en félagið mun halda úti áætlunarflugi á milli London Gatwick og Akureyrar út mars 2024. Flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum.

Um er að ræða sögulegan áfanga í sögu norðlenskrar ferðaþjónustu.

Vélinni verður fagnað á viðeigandi máta.