Við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra (HNV) á neysluvatni á Siglufirði mánudaginn 19. október 2026, greindust E.coli gerlar í sýninu. Að svo stöddu er ekki ljóst hvað veldur menguninni.
Í samræmi við 14. gr. reglugerðar nr. 536/2001 um neysluvatn, ráðleggur Heilbrigðiseftirlitið í samráði við Matvælastofnun að neysluvatnið á Siglufirði sé soðið fyrir neyslu. Leiðbeiningar um suðu neysluvatns má finna hér.
Heilbrigðiseftirlitið mun upplýsa íbúa þegar nauðsynlegum úrbótum á vatnsveitunni er lokið og þegar vatnsgæði hafa verið endurheimt.
Starfsmenn Tæknideildar Fjallabyggðar ásamt HNV vinna að því að finna orsök mengunarinnar.