Fyrr í dag var dregið úr seldum miðum í Jólahappdrætti Knattspyrnufélags Fjallabyggðar (KF) á Sýslumannsskrifstofunni á Siglufirði. Vinningsnúmerin má sjá hér að neðan.
Vinningshafar geta haft samband við þann sem seldi þeim miða eða haft beint samband við Hákon bakara (Gjaldkeri KF) í síma 8570466 eða á kf@kfbolti.is frá og með miðvikudeginum 6. desember.
KF vill koma fram þakklæti til allra fyrirtækjanna sem studdi félagið í happdrættinu sem og öllum þeim sem keyptu miða.
Vinningskrá er birt með fyrirvara um prentvillur.