Hæstiréttur hefur dæmt fyrirtækinu Metrostav a.s. að greiða Háfelli ehf., 62.189.924 krónur með dráttarvöxtum. Þá var Metrostav gert að greiða Háfelli 10.000.000 króna í málskostnað. Bæði fyrirtækin unnu að gerð Héðinsfjarðarganga og snérust deilur um verksamning, uppgjör og ógildingu samnings.  Dóminn í heild má lesa hér.

Í dóminum stendur:

“Árið 2006 samdi Vegagerðin við Metrostav og Háfell ehf. um vinnu við gerð Héðinsfjarðarganga. Var verkaskipting M og H ehf. í grófum dráttum þannig að M myndi annast vinnu við jarðgöng og H ehf. jarðvegsvinnu, vega- og brúargerð. Samkvæmt samkomulagi M og H ehf. skyldi hvor aðili um sig fá greiðslu fyrir þá hluta verksins sem hann sæi um samkvæmt nánar tilgreindri tilboðsskrá og í samræmi við umfang þeirra verkhluta sem þar kæmi fram. Frá því að framkvæmdir hófust höfðu M og H ehf. haft uppi ýmsar kröfur, hvor á hendur öðrum, vegna verkþátta sem þeir töldu sig hafa unnið en ekki fengið greitt fyrir úr hendi V, meðal annars vegna þess að umsaminni verkaskiptingu þeirra hefði ekki verið fylgt. Þá bættist einnig við ágreiningur hvernig skipta bæri þeirra á milli verðbótum sem til stóð að semja um við V vegna lækkunar gengis íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum árið 2008. Í september 2009 var undirritað samkomulag við V um viðbótarverðbætur til málsaðila vegna nánar greindra verkþátta, auk þess sem M og H ehf. gerðu sín á milli samkomulag”.