Dalvík/Reynir og Víkingur Ólafsvík mættust á Dalvíkurvelli í dag í lokaumferð Íslandsmótsins í 2. deild karla.  D/R strákarnir vildu vinna síðasta heimaleikinn og enda mótið á góðu nótunum.

Það var Borja Lopes sem skoraði rétt fyrir hálfleik og kom D/R í 1-0.  Ein skipting var gerð í hálfleik hjá D/R en inná kom Aron Máni og útaf fór Alex Máni.

Víkingur jafnaði leikinn á 56. mínútu og var markið skráð sjálfsmark. Aðeins fimm mínútum síðar skoraði Tómas Þórðarson og kom D/R í 2-1.

Á 70. mínútu skoraði Þröstur Jónasson og kom D/R í 3-1. Allir varamenn liðsins fengu að taka þátt í leiknum og fékk Borja heiðurskiptingu undir lok leiksins, en þetta var síðasti leikur hans fyrir félagið og frábært fyrir hann að ná að skora.