Lokahóf Dalvíkur/Reynis fór fram í gærkvöldi. Þar komu saman leikmenn meistaraflokka félagisns, þjálfarar, stjórnir, makar, stuðningsmenn og velunnarar. Viðurkenningar voru afhentar og leikmenn ársins heiðraðir.
Ísak Andri Maronsson Olsen var verðlaunaður og þakkað fyrir hans störf í þágu félagsins með Bróa-bikarnum 2025.
Þeir Áki Sölvason (100), Rúnar Helgi (150) og Borja López (150) fengu allir viðurkenningar fyrir að komast í 100 og 150 leikja klúbbinn.
Meistaraflokkur karla:
Markahæstur: Áki Sölvason
Leikmaður leikmannana: Miguel Goncalves
Leikmaður ársins: Alejandro Zambrano
Meistaraflokkur kvenna:
Markahæst: Aníta Ingvarsdóttir
Leikmaður leikmannana: Arna Kristinsdóttir
Leikmaður ársins: Aníta Ingvarsdóttir