Dalvík/Reynir tók á móti ÍR í 2. deild kvenna í gær á Dalvíkurvelli í 10. umferð Íslandsmótsins. Liðin mættust í tveimur mótsleikjum í fyrra og vann D/R báða leikina. ÍR hafði aðeins unnið einn leik og gert eitt jafntefli fyrir þennan leik og voru í þriðja neðsta sæti deildarinnar með 4 stig. D/R stelpurnar höfðu unnið tvo leiki í röð og voru með 11 stig.
Arna Kristinsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 25. mínútu og kom D/R í 1-0, og þannig var staðan í hálfleik.
Engar breytingar voru á byrjunarliðunum í hálfleik.
Hafrún Mist Guðmundsdóttir skoraði annað mark D/R á 66. mínútu, en hún er markahæsti leikmaðurinn í liðinu. Staðan orðin 2-0. Þjálfari ÍR gerði tvöfalda skiptingu strax eftir markið, en liðið náði ekki að minnka muninn.
Lokatölur urðu því 2-0 og var þetta þriðji sigur D/R í röð í deildinni.