Dalvík/Reynir mætti KÞ á Dalvíkurvelli í B-úrslitum 2. deildar kvenna. Leikurinn var jafn og spennandi, en D/R hafði unnið KÞ í ágústmánuði og jafntefli fór í leiknum í vor.

Dalvík/Reynir stelpurnar voru betri í fyrri hálfleik og skoruðu fyrsta markið á 32. mínútu þegar Rósa Guðmundsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í deildinni í sumar.  Staðan 1-0. KÞ stelpurnar vóru fljótar að jafna og var staðan orðin 1-1 á 35. mínútu. Arna Kristinsdóttir skoraði á 37. mínútu fyrir Dalvík/Reynir og var staðan orðin 2-1.

Rósa Guðmundsdóttir skoraði öðru sinni fyrir Dalvík/Reynir á 44. mínútu og var staðan 3-1 í hálfleik.

KÞ stelpurnar byrjuðu af krafti í síðari hálfleik og minnkuðu muninn á 53. mínútu og var staðan orðin 3-2. Rúmum 10 mínútum síðar skoraði KÞ aftur og var nú orðið jafnt 3-3.

Rósa Guðmundsdóttir var ekki hætt og kom Dalvík/Reynir yfir á 65. mínútu, eða mínútu eftir jöfnunarmarkið. Hennar þriðja mark í leiknum og í sumar í deildinni.

Bæði lið gerðu nokkrar skiptingar fram að uppbótartíma. Allt leit út fyrir sigur D/R, en á 93. mínútu jafnaði KÞ leikinn og var niðurstaðan 4-4 jafntefli í þessum mikla markaleik.

Dalvík/Reynir leikur næst við Aftureldingu á Varmá 9. september.