Dagskráin á Síldarævintýrinu á Siglufirði er nú komin af stað. Lifandi viðburður er á Ljóðasetrinu kl. 16:00 og svo hefst grillveisla fyrir íbúa og gesti við grunnskólahúsið á Siglufirði kl. 18:00. Síldarball er á Segli 67 kl. 19:00 og Tónlistarbingó Landabandsins á Síldarkaffi kl. 21:00.

Á morgun föstudaginn 31. júlí verður listasmiðja fyrir börn og aðstandendur hjá Alþýðuhúsinu. Hoppukastalar og nerfbyssur í Íþróttahúsinu á Siglufirði. Leikhópurinn Lotta með sýningu og Bjórgötuhlaup hjá Segli67. Tónlistardagskrá verður við Ráðhústorgið frá kl. 20:00. Kveikt verður á blysum við Siglufjarðarkirkju kl. 22:30.  Flugeldasýning verður kl. 23:30.

Á Kaffi Rauðku verða Stúlli, Tóti og Geir Ólafs og Eva Karlotta á Aðalbakarí.