Í næstu viku tekur Dalvíkurskóli á móti gestum úr Comeniusarverkefninu NIFE, Natural Ideas for Europe. Verkefnið er unnið í samstarfi við sex aðra skóla í fimm löndum; Finnlandi, Þýskalandi, Belgíu, Írlandi, Ítalíu og Slóveníu, og fjallar um umhverfismál. Með kennurunum koma nokkrir nemendur sem gista í heimahúsum á Dalvík. Gestirnir koma seint á laugardagskvöld og þeir síðustu fara heima á fimmtudaginn næstkomandi.
Á meðan heimsókninni stendur verður afrakstur verkefnavinnu síðustu vikna kynnt og næstu verkefni skipulögð. Þá verður farið í hvalaskoðun, dagsferð til Mývatns, Byggðasafnið heimsótt og farið á hestbak.