Ungmennaráð er ráðgefandi um málefni er tengjast ungu fólki á aldrinum 14 til 20 ára í Fjallabyggð í umboði bæjarstjórnar.Ungmennaráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um hvert það mál sem ráðið telur tengjast hagsmunum og aðstæðum ungs fólks. Eins tekur ungmennaráð til umfjöllunar þau mál sem nefndir sveitarfélagsins eða bæjarstjórn sendir ráðinu til umsagnar eða umfjöllunar.
Formaður Ungmennráðs er Heiðdís Erla Sigurðardóttir og varaformaður er Reynir Logi Kristinsson. Aðrir í ráðinu eru:
Tristan Nökkvi Magnússon, Kamilla Maddý Heimisdóttir og Frímann Páll Ásgrímsson.