Verktakinn Smárinn ehf. í Fjallabyggð hefur lokið við að þökuleggja tjaldsvæðið í Ólafsfirði. Til stóð að klára fyrir verslunarmannahelgina en túnþökur fengust ekki afgreiddar í þrjár vikur vegna lokunar hjá aðila sem selur túnþökur á svæðinu. Aðeins er núna eftir smá frágangur á tjaldsvæðinu.
Verktakinn hefur einnig unnið að flóttaleið við Múlagöng í Ólafsfirði síðustu vikur. Þá hefur verktakinn nýlega fjárfest í Scania með langan vinnuarm sem á eftir að reynast vel í verkefnum í Fjallabyggð.



