Það er frábær tónleikadagskrá í Bergi Menningarhúsi á Dalvík í október. Bubbi Morthens heldur þar tónleika þann 6. október og Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson halda sína tónleika þann 17. október. Nánar hér að neðan.
Þorpin – Bubbi leggur land undir fót
Laugardaginn 6. október kl. 20:30
Nú í haust mun Bubbi Morthens leggja land undir fót og heimsækja landsbyggðina auk þess sem hann mun koma fram á höfuðborgarsvæðinu. Heiti tónleikaraðarinnar að þessu sinni er “Þorpin” og vísar Bubbi þar annars vegar í landsbyggðina og hins vegar í síðustu geislaplötu sem hann gaf út og ber nafnið Þorpið. Hún kom út í vor og hefur selst mjög vel. Á þeirri plötu hverfur Bubbi að hluta til aftur í ræturnar og er kassagítarinn framar en hann hefur verið lengi. Miðaverð er kr. 2.500, miðasala á midi.is og við innganginn.
Stebbi og Eyfi – tónleikar
Miðvikudaginn 17. október kl. 20:30
Stebbi og Eyfi sendu frá sér geisladiskinn „Fleiri notalegar ábreiður“ fyrir síðustu jól og munu nú á haustmánuðum heimsækja höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina og kynna diskinn með tónleikahaldi. Ásamt því að flytja lög af nýja geisladiskinum munu hljóma margar af þeim dægurperlum, sem þeir félagar hafa sent frá sér bæði
saman og í sitthvoru lagi, lög eins og „Hjá þér“, „Líf“, „Undir þínum áhrifum“, „Okkar nótt“, „Álfheiður Björk“, „Dagar“, ,,Draumur um Nínu“ o.m.fl. Einnig munu þeir félagar spjalla á léttum nótum við tónleikagesti og segja óborganlegar sögur úr bransanum.
Miðaverð: kr. 2.500.
Nánari upplýsingar á Berg Menningarhús.
Heimild: www.dalvik.is/menningarhus/