Guðrún Sif Guðbrandsdóttir hefur skrifað  BS verkefni sem fjallar um Hótel Sunnu á Siglufirði. Verkefnið er á Viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á Akureyri.

Markmiðið með þessu verkefni var að kanna hvort að það sé grundvöllur fyrir byggingu 64 herbergja, þriggja til fjögurra stjörnu hótels á Siglufirði. Það var gert með að setja upp rekstraráætlun fyrir fimm ár, einnig var gert arðsemismat.
Gerð var SVÓT greining fyrir hótelið sem og markhópagreining í samvinnu við stjórnendur Rauðku ehf. Horft var í fjölda gistinátta á Norðurlandi eystra sem og hótelnýtingu á ársgrundvelli. Aðilar á gistiheimila- og hótelmarkaðnum voru spurðir um nýtingu og reynslutölur.

Farið var ítarlega í afþreyingarmöguleika í Fjallabyggð til að hægt yrði að sjá hvort ferðamenn myndu sækjast eftir því að koma til Fjallabyggðar. Þá var farið yfir sögu Siglufjarðar í mjög stuttu máli og breytingu á staðnum síðustu 20 árin.

Ritgerðin sjálf hefur ekki verið gerð opinber á netinu en efnisyfirlit hennar má lesa hérna og heimildaskránna hér.

Heimild: www.skemman.is http://hdl.handle.net/1946/12213