Íris Dröfn Árnadóttir hefur verið sett sem sýslumaður á Austurlandi og Bryndís Héðinsdóttir hefur verið sett sem sýslumaður á Norðurlandi eystra frá og með 1. ágúst.

Svavar Pálsson, sýslumaður á Norðurlandi eystra og settur sýslumaður á Austurlandi, hefur beðist lausnar úr embætti. Hann tekur við starfi sveitarstjóra Húnabyggðar frá 1. október.  Svavar hefur verið sýslumaður á Norðurlandi eystra frá árinu 2015 og settur sýslumaður á Austurlandi síðan 2024. Þar áður var hann sýslumaður og lögreglustjóri á Húsavík.

Öll sýslumannsembættin verða sameinuð í eitt embætti þann 1. janúar 2027 þegar lög um sýslumann taka gildi. Nýr sýslumaður verður skipaður í ágúst.

Þetta er ein stærsta stjórnsýslubreyting síðari ára og hefur mikil vinna verið unnin í ráðuneytinu í samstarfi við sýslumannsembættin á landinu öllu til að tryggja að sameiningin gangi vel fyrir sig.