Brunavarnir Skagafjarðar auglýsa eftir starfsmanni í starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns.
Starfssvið:
Starfið felst í vinnu við slökkvi- og sjúkraflutningaþjónustu, slökkvitækjaþjónustu og annarra starfa á slökkvistöð.
Útkalls- og bakvaktarskylda er utan dagvinnutíma.
Hæfniskröfur:
- Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og lög nr. 75/2000 um Brunamál.
- Nám í sjúkraflutningum ( EMT-I) æskilegt.
- Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
- Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin réttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið.
- Hafa iðnmenntun (sveins- eða vélstjórapróf) sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.
- Standast læknisskoðun og þrekpróf.
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og góð framkoma
- Almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar hér.