Á föstudaginn var brautskráningarathöfn Háskólans á Hólum haldin í Sögusetri íslenska hestsins. Ellefu nemendur brautskráðust að þessu sinni. Frá Ferðamáladeild brautskráðust fimm einstaklingar, frá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild brautskráðust fimm einstaklingar og frá Hestafræðideild brautskráðist einn einstaklingur.
Ávörp fluttu Hólmfríður Sveinsdóttir rektor og nýbrautskráður meistaranemi Deisi Trindade Maricato, fulltrúi nemenda.
Um tónlistarflutning við athöfnina sá Eysteinn Guðbrandsson.
Að athöfn lokinni bauð háskólinn nýbrautskráðum Hólamönnum, aðstandendum og starfsfólki til veglegrar veislu sem Kaffi Hólar sáu um.