Í dag var brautskráningarathöfn Háskólans á Hólum haldin í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Frá skólanum brautskráðust einstaklingar frá fimm þjóðlöndum. Auk Íslands voru nemendur frá Danmörku, Þýskalandi, Portúgal og Ungverjalandi.

Að loknu ávarpi rektors, Hólmfríðar Sveinsdóttur flutti Ragna Guðrún Snorradóttir ávarp brautskráningarnema. Róbert Smári Gunnarsson útskriftarnemandi af Ferðamáladeild sá um tónlistarflutning ásamt Eysteini Guðbrandssyni.

Lára Gunndís Magnúsdóttir, kennslustjóri stýrði athöfninni.

Alls brautskráðust 45 nemendur frá skólaum að þessu sinni. Frá Ferðamáladeild brautskráðust 25 einstaklingar, tólf með diplómu í viðburðastjórnun, sjö með BA gráðu í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta og sex með BA gráðu í ferðamálafræði.

Á Ferðamálabraut voru veittar tvær viðurkenningar fyrir hæsta námsárangur. Magnea Lára Elínardóttir hlaut hæstu einkunn í BA í Ferðamálafræði og Hulda María Þorláksdóttir fékk viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í diplómunám í Viðburðarstjórnun.

Frá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild brautskráðust fimm nemendur, fjórir með diplómu í fiskeldsfræðum og einn með MS gráðu í sjávar- og vatnalíffræði.

Frá Hestafræðideild brautskráðust 15 kandídatar með BS í reiðmennsku og reiðkennslu. Hjá Hestafræðideild voru í dag veittar tvær viðurkenningar. Fyrir framúrskarandi árangur í reiðkennslufræði og hæstu meðaleinkunn í BS í reiðmennsku og reiðkennslu og hlaut Sigríður Vaka Víkingsdóttir báðar viðurkenningarnar.

Við óskum öllum nemendunum sem brautskráðust og fjölskyldum þeirra í dag hjartanlega til hamingju!

Áhugasamir um nám hjá Háskólanum á Hólum mega hafa samband í netfangið holar@holar.is

Mynd:Ingunn Ingólfsdóttir