Barnshafandi konum á Norðurlandi býðst að koma í fyrri bólusetningu með Pfizer bóluefni í þessari eða næstu viku. Mælt er með að bólusetning fari fram eftir að fyrstu 12 vikum meðgöngu er lokið.
Sjá nánari upplýsingar hér í hlekk. Hlekkur Embætti Landlæknis um Bólusetningar barnshafandi kvenna við COVID-19
Bólusetningin fer fram á eftirtöldum stöðum og eru barnshafandi konur velkomnar óháð búsetu á Norðurlandi.
- Fimmtudaginn 29. júlí kl: 16 í Fjölbrautskólanum á Sauðárkróki.
Bóka þarf tíma í síma 432 4236.
- Föstudaginn 30. júlí kl: 13 á heilsugæslunni á Siglufirði.
Bóka þarf tíma í síma 460 2100.
- Fimmtudaginn 5. ágúst á Slökkvistöðinni á Akureyri kl: 13-14.
Skráning fer fram á staðnum og nauðsynlegt að hafa með sér skilríki.
Minnt er á grímuskyldu. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. Allar þurfa að bíða í um 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.
Texti: Hsn.is