Bólusettum einstaklingum 60 ára og eldri býðst viðbótarskammtur á næstu vikum. Hjá þeim sem eru 70 ára og eldri þurfa að líða að lágmarki 3 mánuðir frá seinni bólusetningu en 6 mánuðir hjá öðrum. Bólusett verður með bóluefni frá Pfizer, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu.

Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningar eða ekki getað nýtt sér fyrri boð er velkomið að koma á auglýstum opnunartíma á Akureyri.  Ekki er þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn. Á öðrum starfsstöðvum skal hafa samband við heilsugæslu og panta tíma.

Bólusetningar 20. – 24. september  á Akureyri

Bólusett verður á Slökkvistöðinni á Akureyri, fimmtudaginn 23. september frá kl. 12-14. ATH breyttur opnunartími þessa viku.

Boð hafa verið send út til þeirra sem eiga að koma í seinni bólusetningu en einnig eru þeir velkomnir sem eiga eldra boð og hafa ekki komist hingað til.

Boð verða send út í næstu viku til hóp fólks 60 ára og eldri sem eru komin á tíma fyrir þriðja skammt.

Bólusetningar á öðrum starfstöðvum

Á öðrum starfsstöðvum skal hafa samband við heilsugæslu og panta tíma.