Samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðherra um hertar aðgerðir vegna samkomubanns skal loka öllum söfnum á tímabilinu 24. mars – 12. apríl. Þetta þýðir að Bóka- og héraðsskjalasafn Fjallabyggðar lokar frá og með 24. mars á meðan á samkomubanni stendur. Ekki reiknast sektir á þessu tímabili í útlánsbókum og verður settur nýr skiladagur 14. apríl.