Karla- og kvennalið Blakfélags Fjallabyggðar eru í höfuðborgarsvæðinu um helgina og keppa í 2. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla og 3. deild kvenna. Fyrstu leikir liðanna voru í kvöld og halda áfram um helgina. Karlarnir keppa í Mosfellsbæ en konurnar í Laugardalshöllinni.

Kvennaliðið lék fyrst við Álftanes-2 og úr varð hörku leikur.  BF hafði yfirhöndina í fyrstu hrinu og unnu 25-20 eftir mikla baráttu.

Álftanes var sterkaraliðið í hrinu tvö og voru náðu upp góðu forskoti þegar leið á hrinuna. BF minnkaði muninn í 19-22 en Álftanes vann hrinuna 21-25 og var staðan orðin 1-1 og var því leikin oddahrina.

Oddahrinan var jöfn en BF komst fljótlega í góðan takt og náðu forskotinu. BF komst í 12-7 og tók þá Álfanes leikhlé.

BF kláraði hrinuna örugglega 15-9 og unnu leikinn 2-1.

Frábær sigur hjá konunum.