Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð frá litlum fiskibát í gær. Báturinn var staddur afar nærri landi, norðarlega í mynni Ólafsfjarðar og hafði fengið net í skrúfuna.
Björgunarsveitin Tindar í Ólafsfirði og björgunarskipið Sigurvin frá Strákum á Siglufirði voru kölluð út á mesta forgangi. Um tíma leit út fyrir að bátnum myndi reka í strand. Aðgerðastjórn var einnig virkjuð á Akureyri.
Fyrsta viðbragð var frá Björgunarsveitinni Tindi í Ólafsfirði sem héltu út á tveimur björgunarsæþotum og komu taug í fiskibátinn sem hafði þegar varpað akkeri, og var ekki lengur yfirvofandi hætta á strandi bátsins.
Skömmu síðar kom björgunarskipið Sigurvin frá Siglufirði á vettvang og tók bátinn í tog og dró inn til hafnar á Ólafsfirði.
Veður var gott og gekk björgunaraðgerðin mjög vel.