Í gær voru Björgunarsveitir í Fjallabyggð með fjórar útkallsæfingar sem voru frá kl 9:00 til rúmlega 19:00. Æft var þar sem bíll hafði velt, og einnig leitaræfingar og snjóflóðaæfing. Björgunarsveitin Strákar og Tindur ásamt Björgunarsveitinni á Dalvík auk Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík tóku þátt. Þyrla gæslunnar mætti á svæðið og var æft sig og hýfa upp slasaðan einstakling. Fjölmennur hópur tók þátt í þessari viðamiklu æfingu.
Hópurinn endaði svo í súpu hjá Slysavarnardeildinni Vörn.