Miðvikudaginn 5. nóvember munu félagar í Björgunarsveitinni Tindur ganga í hús í Ólafsfirði og selja neyðarkallinn.
Neyðarkallinn kostar kr. 3.500kr í ár og er straumvatnsbjörgunarmaður tileinkaður minningu Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar, félaga í Landsbjörgu, sem lést af slysförum á síðasta ári.
Einnig er hægt að vera í samband við sveitina á fésbókarsíðunni.