Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði var að störfum til um 4:30 í morgun ásamt öðrum viðbragðsaðilum í bænum. Töluvert tjón varð í Siglufirði í þessum óveðurshvelli í nótt en enginn hefur slasast.
Nóttin hjá björgunarsveitinni fór að mestu í það að fergja brak og forða frekara tjóni en hættulegt ástand skapaðist um tíma.
Gengið var hratt en örugglega til verks og hófst svo hreinsunarstarf í morgunsárið milli lægða.
Hviður í nótt á Siglufirði fór í um 45 m/s en rauð viðvörun er í gild til kl. 16:00 í dag. Hviður nú eftir hádegið á Siglufirði hafa farið upp í 40 m/s.