Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði hafa fest kaup á framtíðarhúsnæði fyrir starfsemi sveitarinnar við Vesturtanga 2-6 á Siglufirði. Strákar áttu áður hluta af húsnæðinu sem keypti árið 2020 af Gunnlaugi Oddssyni og nú seldi sonur hans Freyr Gunnlaugsson sinn hluta í norðurenda hússins.
Húsnæði þetta mun rúma alla starfssemi sveitarinnar undir einu þaki sem hefur verið í þremur húsum undanfarið. Nálægð við Björgunarskipið Sigurvin sem hefur verið úthlutað varanlegu plássi í Innri Höfn með dyggilegri aðstoð Fjallabyggðar og góð aðkoma ásamt stóru útisvæði réðu úrslitum í að ráðist var í þessi kaup.
Mikil vinna er nú framundan við að gera aðstöðuna fullbúna til framtíðarnota fyrir allar deildir sveitarinnar og verður það verkefni unnið eins og efni og aðstæður leyfa. Búið er að gera bráðabirgða aðstöðu í miðhluta hússins til þess að sveitin sé útkallsklár meðan breytingar standa yfir.
Ljóst er verkefnið verður kostnaðarsamt og þeir sem vilja styrkja sveitina er bent á þennan hlekk.



