Björgunarsveitarfólkið í Strákum mun ganga í hús á Siglufirði miðvikudaginn 4. nóvember og selja Neyðarkallinn. Salan hefst kl. 18:00.
Neyðarkall ársins kostar 3.500 kr.
Í 20 ár hefur þjóðin svarað neyðarkallinu og nú er neyðarkallinn í ár til heiðurs þeim öflugu sjálfboðaliðum sem sinna því mikilvæga hlutverki að standa vaktina í fjáröflunum.
Árlegt fjáröflunarátak Neyðarkallsins er ein af mikilvægum stoðum í starfi björgunarsveita og slysavarnadeilda. Allur ágóði af sölunni rennur til starfsins og nýtist meðal annars til kaupa á búnaði, þjálfunar sjálfboðaliða og eflingar viðbragðsgetu.
Þegar neyðarkall berst eru sjálfboðaliðar björgunarsveitanna ávallt reiðubúnir að bregðast við, með þekkingu sína, reynslu og búnað að vopni. Stuðningur almennings gerir þeim kleift að sinna þessu mikilvæga hlutverki, ár eftir ár.