Í vikunni var björgunarskipinu Sigurvin lagt við glæsilega nýja flotbryggju sem sveitarfélagið Fjallabyggð lét útbúa sérstaklega fyrir björgunarskipið. Nýja bryggjan er staðsett rétt við húsgaflinn á nýju húsnæði Björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði og gjörbreytir allri aðkomu og öryggi fyrir áhöfn skipsins.
Bryggjan er með sérstaklega breiðum landgangi svo auðveldara er að koma búnaði og sjúklingum í börum til og frá skipinu. Bryggjan er frá Köfunarþjónustunni og J.E. Vélaverkstæði sá um að koma bryggjunni fyrir á sínum stað.