Björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði fór í óvenju langt útkall í gær þegar skipið var kallað til aðstoðar við fiskiskip á vestanverðum Húnaflóa ásamt björgunaraðilum þar í flóanum.
Fiskiskipið var í um 60 sjómílna fjarlægð frá Siglufirði og tók siglingin að skipinu rétt rúmar tvær klukkustundir.
Það segir mikið um ganghraða nýju björgunarskipa Landsbjargar að aðeins munaði um 5 mínutum á siglingartíma Sigurvins og Húnabjargar frá Skagastönd en þaðan var um 30 sjómílna sigling að skipinu. Meðalhraði Sigurvins á leið að skipinu var 28 hnútar meðan eldri gerð björgunarkipa siglir á um 13-14 hnúta hraða.
Síðdegis í gær hafði fiskiskip sem var að veiðum í Húnaflóa samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti að talsverður leki væri í vélarúmi skipsins.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Drangsnesi, Skagaströnd og Siglufirði voru þegar í stað kölluð út á mesta forgangi. Að auki hafði Landhelgisgæslan samband við önnur skip og báta í grenndinni og óskaði eftir að þau héldu á svæðið.
Rúmum stundarfjórðungi eftir að útkallið barst upplýsti fiskiskipið að búið væri að stöðva lekann og að verið væri að dæla sjó úr skipinu. Skipið var þá enn aflvana og var ákveðið að björgunarskipin Sigurvin frá Siglufirði og Húnabjörg frá Skagaströnd héldi áfram að fiskiskipinu en þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, björgunarbáturinn á Drangsnesi og önnur fiskiskip voru afturkölluð.
Fjórtán voru um borð í fiskiskipinu og hæglætisveður var á svæðinu.
Um kvöldmatarleytið stóð til að björgunarskipið frá Skagaströnd tæki skipið í tog en áhöfn fiskiskipsins tókst að koma vélum þess í gang og það sigldi því fyrir eigin vélarafli til hafnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gæslunni og Björgunarsveitinni Strákum.