Skíðafélag Ólafsfjarðar stendur fyrir kynningarfundi í skíðaskálanum Tindaöxl, fimmtudaginn 5. janúar kl 20:00. Hugmynd félagsins er að kanna áhuga á vikulegum æfingu og dagskrá fyrir 55 ára og eldri en hugmyndin byggir á verkefninu Bjartur Lífsstíll.
Hugmynd Skíðafélags Ólafsfjarðar er að bjóða upp á æfingar og kennslu í skíðagöngu og alpagreinum einu sinni í viku. Inn í þetta fléttast svo samvera, fræðsla og skemmtilegar uppákomur. Þetta er ekki einungis ætlað skíðandi einstaklingum en einhverjir geta tekið að sér að sinna dagskrá kvöldsins: ljóð/brandara, kaffið, tónlistina og fleira.
Kynntu þér lífsstílinn, félagsstarfið og Skíðafélag Ólafsfjarðar.