Vegna bilunar í borholu Rarik á Siglufirði er minna framboð á heitu vatni. Notendur eru af þeim sökum beðnir um að fara sparlega með heitt vatn þar til viðgerð er lokið en búist er við að það verði klukkan 16:00, þriðjudaginn 3. mars.
Vegna þessa hefur verið tekin ákvörðun um að heiti potturinn í Sundhöll Siglufjarðar verður lokaður þar til bilun í borholu Rarik er lokið.
Nánari upplýsingar um bilunina veitir stjórnstöð Rarik í síma 528-000. Kort af áhrifasvæði má sjá á www.rarik.is/rof.