Jeppi varð alelda á Siglufjarðarvegi í gærkvöldi er gjörónýtur. Að sögn lögreglu drap bíllinn á sér og þegar ökumaður opnaði húddið blossaði eldurinn upp. Bíllinn er 2006 árgerð. Hjón voru í bílnum og sakaði þau ekki. Bílhræinu var komið á flutningabíl og af staðnum en á meðan var önnur akreinin lokuð og umferð stjórnað um veginn.

Atvikið átti sér stað á Siglufjarðarvegi rétt við bæinn Sleitustaði.

Slökkvilið kom á staðinn um 10-15 mínútum eftir að kviknaði í bílnum. Hann var þá ónýtur en var kældur niður, að sögn lögreglunnar.

Heimild:mbl.is