Uppfært: Bikarmótinu í dag hefur verið aflýst vegna veðurs.
Bikarmót Skíðafélags Siglufjarðar Skíðaborg átti að fara af stað snemma í morgun en hefur verið frestað í tvígang vegna veðurs. Stórsvig drengja 12-13 ára og 14-15 ára er á dagskráinni í dag þegar veður skánar. Umsjónarmenn skíðavæðisins tilkynntu í morgun að svæðið yrði lokað fyrir almenning í dag vegna veðurs. Á svæðinu er -8 stig og vindur núna 4-6 m/s en vindhviður 10 m/s.
Ný tilkynning frá mótsstjórn verður aftur kl. 10:00, og vonandi verða jákvæðar fréttir af mótinu í dag.
Í gærkvöldi var sundlaugarpartý í Sundlaug Siglufjarðar fyrir keppendur og fararstjóra.

