Karlalið Blakfélags Fjallabyggðar átti að mæta Aftureldingu-ungir nú í morgun en mættu aðeins með 5 leikmenn og var því Aftureldingu dæmdur sigur. Sex leikmenn þarf til að manna lið í blaki, en ekki er vitað hvort menn hafi hreinlega sofið yfir sig eða hvort meiðsli herji á hópinn. Ekki oft sem svona gerist, en erfitt er að fresta leik á þessum helgarmótum, sem er annars almennt hægt í deildarkeppnum í blaki þegar fyrirvari er á svona málum.
BF á annan leik síðar í dag gegn BH og vonandi ná þeir í lið fyrir þann leik.