Tónlistarhátíðinni Berjadögum í Ólafsfirði hefur verið frestað um óákveðin tíma vegna samkomutakmarkana, en hátíðin átti að hefjast í dag og standa yfir verslunarmannahelgina. Ákvörðun var tekin í samráði við Sveitarfélagið Fjallabyggð, kemur fram í tilkynningu.
