Iceland Express býður í sumar upp á fast áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Félagið hafði áður tilkynnt að ekki yrði af fluginu en hefur nú skipt um skoðun vegna þrýstings frá heimamönnum. Fólk frá Fjallabyggð þarf því ekki að keyra til Reykjavíkur til að komast erlendis í sumar. Þá er hægt að taka fjölmargar tengingar frá Kaupmannahöfn til annarra landa.
Síðastliðin sex sumur hefur Iceland Express boðið upp á fast áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar en í lok síðasta árs tilkynnti félagið að því yrði hætt. Nú hefur flugfélagið hinsvegar ákveðið að hætta við fyrri ákvörðun sína og fljúga vikulega til Kaupmannahafnar frá Akureyri allan júlí og fram í miðjan ágúst. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, segir að mikill þrýstingur hafi verið frá heimamönnum að halda fluginu enda vinsælt að geta flogið beint frá Akureyri til Kaupmannahafnar. „Þannig að við einfaldlega létum undan þeim mikla þrýstingi sem við urðum fyrir,” segir Heimir.