Björgunarskipið Sigurvin frá Siglufirði var kallað til aðstoðar við bát sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna skammt fyrir utan Siglufjörð nú í morgun.

Blíðuveður var á miðunum og gekk vel að draga bátinn til hafnar í Siglufirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgunarsveitinni Strákum ásamt mynd með frétt.