Þar sem vinnu við lagningu hitaveitu á Skagaströnd er að ljúka verður öllum sem vilja boðið á ball með hljómsveitinni Hvanndalsbræðrum í Kántrýbæ föstudaginn 13. september næstkomandi. Húsið opnar kl. 23.00.

Gv-Gröfur og Sorphreinsun VH vilja með þessu þakka íbúum á Skagaströnd fyrir gott samstarf í sumar vona að sem flestir muni mæta og eiga gleðistund og njóta Hvanndalsbræðra á góðu balli.