Í síðustu viku benti ekkert til þess að hægt væri að halda Fjarðargönguna í miðbæ Ólafsfjarðar og hófst strax undirbúningur að færa viðburðinn inn á Lágheiðina. Eftir snjókomuna á föstudaginn var ljóst að nægur snjór yrði til að halda keppnina í miðbæ Ólafsfjarðar. Keppnin færðist til um einn dag svo hægt yrði að undirbúa brautina.

Eins og má sjá á þessum myndum sem Guðmundur Ingi Bjarnason tók þá er víða mikill snjór í Ólafsfirði.