Óðinn Freyr Rögnvaldsson sem er starfandi bæjarverkstjóri  Fjallabyggðar og Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar hafa upplýst bæjarstjórn Fjallabyggðar um stöðu mála eftir atburði síðustu helgar þegar mikil rigning var á Tröllaskaga sem olli víða tjóni.

Þeim hefur nú verið falið að skila inn greinargerð um atburði helgarinnar ásamt tillögum að bráðaaðgerðum.
Fjallabyggðar skoðar einnig hver tryggingaleg staða sveitarfélagsins er í ljósi atburðanna.